
Málning
Það segir sig sjálft
Íslenskt litaval – fagmennska og gæði síðan 1953
Málning hf hefur frá stofnun árið 1953 verið leiðandi afl í íslenskri málningarframleiðslu. Fyrirtækið reis upp úr hugmyndum og handverki fólks sem átti rætur í verkum Málarans, Péturs Guðmundssonar – og hefur aldrei horft til baka.


Gæðavörur og innsýn fyrir atvinnufólk
Nýjustu lausnir fyrir fagfólk í hönnun og framkvæmdum

Framkvæmdir með framtíðina í huga.
Umhverfisvæn framtíð í framkvæmdum
Vottaðar vörur. Sönn gæði.
Við leggjum metnað í að bjóða lausnir sem eru bæði endingargóðar og umhverfisvænar. Með Svansvottuðum vörum og ströngum kröfum um efnisnotkun tryggjum við gæði án málamiðlana fyrir heilsu og náttúru.
Við erum leiðandi í að bjóða:
- Svansvottaða málningu fyrir heimili og atvinnuhúsnæði
- Umhverfisstefnu sem nær yfir framleiðslu, notkun og förgun
- Heilsuvænar lausnir fyrir notendur og fagfólk
Saman mótum við framtíð byggingariðnaðarins — á ábyrgan hátt.

Verklýsingar
Við tökum skýra og vandaða verkferla alvarlega. Hér finnur þú ítarlegar verklýsingar sem nýtast fagfólki við hönnun, undirbúning og framkvæmd. Allar verklýsingar eru samdar með tilliti til íslenskra aðstæðna, gæða og endingar.
Verklýsingarnar eru flokkaðar eftir notkunarsvæði:
- Innanhúss: Veggir, loft og gólf – grunnun, málun og frágangur
- Utanhúss: Yfirborðsvörn og málun á múr, steypu og klæðningum
- Viðarvörn: Vörur og verklag fyrir nýjan og veðraðan við
Hvort sem þú ert verktaki, arkitekt eða hönnuður – hér færðu skýrar leiðbeiningar sem styðja við vandaða vinnu.


Fyrirtækið á bak við litina
Saga, vöxtur og sérstaða Málningar hf
Fagmennska og gæði síðan 1953
Höfuðstöðvar Málningar hf eru í Kópavogi. Fyrirtækið var stofnað þann 16. janúar 1953. Margir af stofnendum voru afkomendur Péturs Guðmundssonar málarameistara, oft kennds við viðurnefnið „Málarinn“.
Í upphafi var starfsemin rekin í gömlu skólahúsi við Kársnesbraut 32 í Kópavogi. Með tímanum var húsið aðlagað nýrri starfsemi og stækkað eftir þörfum. Árið 1981 flutti söludeildin og vöruhúsið að Lynghálsi 2, en framleiðsla og önnur dagleg starfsemi héldu áfram í gamla húsinu.
Þann 13. júlí 1987 varð fyrirtækið fyrir miklu áfalli þegar húsið við Kársnesbraut brann til grunna. Tjónið var mikið bæði fjárhagslega og tilfinningalega. Hráefni og aðrar birgðir að verðmæti tugmilljóna króna eyðilögðust og 2.000 fermetra húsnæði var lagt í rúst. Með skjótum viðbrögðum tókst að bjarga helstu framleiðsluvélum og halda þeim gangandi. Með samstilltu átaki starfsfólks og eiganda hófst framleiðsla að nýju fáeinum dögum síðar, fyrst á Lynghálsi 2 og frá október 1987 á Funhöfða 9.

